Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar, hefur óskað komu Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjóra Reykjavíkur, á fund ráðsins á fimmtudag.
Óskin kemur í kjölfar kvartana yfir framgöngu lögreglu á Secret Solstice og Hinsegin dögum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Pírötum. Elínborg Harpa Önundardóttir, sem var handtekin fyrir meint mótmæli í miðri Gleðigöngu Hinsegin daga um helgina segir útskýringar lögreglunnar á handtökunni „algjört bull.“
Á fundinum mun lögreglustjóri kynna umgjörð lögreglu og verklag við borgarhátíðir sem og svara spurningum ráðsins vegna starfa lögreglu.
Fram kemur í tilkynningu Pírata að í kjölfar Secret Solstice hátíðarinnar er nokkur fjöldi mála í bótakröfuferli sökum kvartana um að lögregla hafi leitað á gestum án dómsúrskurðar.
„Virðing fyrir borgararéttindum er hornsteinn lýðræðisins. Lögreglan hefur einkarétt á beitingu valds gagnvart þegnum okkar lýðræðissamfélags og gríðarlega mikilvægt er að vel sé farið með það vald til að halda trausti borgarbúa á löggæslukerfinu og réttarríkinu sem slíku,” segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar.
Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar fer með eftirlit með því að mannréttindi og borgaraleg og lýðræðisleg réttindi borgarbúa séu virt þvert á stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og á viðburðum með aðkomu Reykjavíkurborgar. „Því var ákveðið að fylgja þessum málum eftir með því að fá kynningu lögreglu og koma ábendingum á framfæri,“ segir í tilkynningunni.