Mennirnir tveir, sem handteknir voru við komu Norrænu til Seyðisfjarðar 1. ágúst, grunaðir um að hafa flutt verulegt magn af fíkniefnum til landsins, voru í síðustu viku úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í fjórar vikur.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að rannsókn málsins miði vel.
Auk þess kemur fram að maður sem var handtekinn vegna alvarlegrar líkamsárásar í Neskaupstað 10. júlí var 5. september einnig úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.