Samtökin No Borders Iceland greina frá því á Facebook-síðu sinni í kvöld að 26 ára gamla albanska konan, sem vísað var frá Íslandi í morgun, hafi verið á ferðinni í 14 klukkustundir og sé nú stödd í Vín í Austurríki.
Þar séu hún og fjölskylda hennar en þau hafa farið í þrjár flugferðir í dag. Konan ber barn undir belti og er komin 36 vikur á leið.
„Hún er búin að vera vakandi í einn og hálfan sólarhring og búin að vera undir eftirliti og valdi lögreglu síðan 18.00 í gærkvöldi,“ segir í Facebook-færslunni. Því er bætt við að konan sé örmagna.
Fram kom í Kastljósi í kvöld að starfsmenn Útlendingastofnunar sáu ekkert athugavert við framkvæmdina eða hvernig var staðið að brottflutningi konunnar í þessu máli. Þeir voru sammála mati starfsmanna stoðdeildar ríkislögreglustjóra sem framkvæmdu brottflutninginn í nótt.