Læknisvottorð sem 26 ára þunguð albönsk kona fékk í hendurnar í gærnótt staðfesti að hún myndi eiga erfitt með langt flug vegna stoðkerfisvandamála. Samt var hún send úr landi, komin tæpar 36 vikur á leið.
Í tilkynningu frá Útlendingastofnun sem send var út fyrr í dag kom fram að í vottorðinu kæmi ekkert fram um að flutningur úr landi myndi stefna öryggi hennar í hættu og því var fyrirhuguðum flutningi ekki frestað.
Blaðamaður mbl.is hafði samband við Útlendingastofnun vegna málsins og spurði hvort fyrirsjáanleg óþægindi konunnar væru ekki nægileg ástæða til að fresta brottvísun fram yfir barnsburð. Upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar kaus að tjá sig ekki um það eða frekar um málið að sinni.
Á vottorðinu sem konan fékk frá lækni á meðgöngudeild Landspítalans stendur:
„Það vottast hér með að _____________ er ófrísk og gengin skv. síðustu tíðum 35 vikur og 5 daga. Hún er slæm af stoðkerfisverkjum í baki og ætti erfitt með langt flug.“
Baksaga málsins er sú að samtökin No Borders Iceland greindu frá því í nótt að vísa ætti fjölskyldu, sem samanstendur af ungu pari með tveggja ára gamalt barn, úr landi. Konan er 26 ára gömul, á von á barni og er komin tæpar 36 vikur á leið.
Þegar lögregluna bar að garði varð konan fyrir áfalli og byrjaði að blæða mikið úr nefi hennar. Parið bað þá um að fara á spítala sem lögreglan leyfði með því skilyrði að lögreglan myndi sækja þau klukkan fimm í morgun fyrir brottvísunarflugið.
Á meðgöngudeild Landspítalans fékk konan vottorð þar sem mælt var gegn því að hún myndi fljúga. No Borders Iceland segja að það vottorð hafi ekki verið tekið gilt og konan hafi verið neydd í flug þrátt fyrir að læknar hafi ráðlagt annað.
Stundin staðhæfði fyrr í dag að fjölskyldunni hafi verið flogið til Þýskalands með vél Icelandair.
Í viðtali við mbl.is í dag sagði Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir fæðingarþjónustu hjá Landspítalanum að fæst flugfélög vildu fljúga með konur sem gengnar eru lengra en 34 vikur á leið, helst vegna þess að þá eru auknar líkur á að þunguð kona fæði í vélinni. Eru læknar mjög hikandi að veita konum vottorð um að þær megi fljúga séu þær komnar 36 vikur á leið.