Fastur á fjallinu í tólf sólarhringa

Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkurfjalli.
Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkurfjalli. mbl.is/Ásdís

Starfsmaður Landhelgisgæslunnar var fastur á Gunnólfsvíkurfjalli í tólf sólarhringa þegar óveðrið mikla gekk yfir landið í desember.

Hann var þar að störfum í einni af fjórum ratsjár- og fjarskiptastöðvum Atlantshafsbandalagsins hér á landi sem Landhelgisgæslan rekur.

Fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni að þrátt fyrir að tvær af stöðvunum séu staðsettar á fjallstoppum, eða á Gunnólfsvíkurfjalli og Bolafjalli, sækir fólk þangað vinnu daglega. Sú staða getur komið upp að fólk festist í vinnunni vegna veðurs, jafnvel svo dögum skiptir.

Aðfaranótt sunnudags stóðu starfsmenn Gæslunnar vaktina á Bolafjalli þegar vindhviðurnar náðu 70 metrum á sekúndu.

„Það er því alveg óhætt að segja að starfsstöðvarnar á fjallstindunum séu nokkuð frábrugðnar því sem gengur og gerist á hefðbundnum vinnustöðum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert