1.300 skjálftar á 2 vikum

Í heildina hefur land risið um 5 cm frá 20. …
Í heildina hefur land risið um 5 cm frá 20. janúar í kringum Þorbjörn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dregið hefur úr skjálftavirkni í grennd við Grindavík en þrír skjálftar hafa mælst þar frá miðnætti, allir undir 2 að stærð. Í gær mældust þar tæplega 60 jarðskjálftar, flestir undir 2 að stærð. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram með virkni á svæðinu.

Frá 21. janúar hafa yfir 1.300 skjálftar verið staðsettir á svæðinu, og eru þeir flestir staðsettir í SV/NA-stefnu um 2 km NA af Grindavík.

Nýjasta GPS-úrvinnslan sýnir áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Í heildina hefur land risið um 5 cm frá 20. janúar sl. Gervitunglamyndir sýna sömu þróun. Með landrisi má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni. Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á 3-9 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast er að virkninni ljúki án eldsumbrota. Næsti fundur vísindaráðs almannavarna verður haldinn á morgun þar sem farið verður yfir stöðuna við Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert