Alls hafa um 1.500 af 8.000 farþegum Icelandair endurbókað flug sitt á föstudaginn vegna óveðursspár því útlit er fyrir að alþjóðaflug liggi niðri. Þetta segir Ásdís Ýr Pétursdóttir upplýsingafulltrúi Icelandair.
„Við tökum reglulega stöðufundi og fylgjumst með hvernig veðrið þróast,” segir Ásdís Ýr. Seinni partinn í dag eða í fyrramálið verða líklega teknar frekari ákvarðanir um viðbragð flugfélagsins vegna óveðursins sem skellur á landinu aðfararnótt föstudags.
Flugfélagið bauð farþegum sínum að endurbóka flug sitt í gær. Eflaust eiga fleiri eftir að nýta sér þetta í dag og á morgun. Hvorki lágu fyrir upplýsingar um hvernig endurbókanir dreifast á flugin né á farþega.
Fréttin hefur verið uppfærð: Þau mistök urðu við vinnslu fréttarinnar að lægðinni sem skellur á landinu á föstudag var ruglað saman við aðra lægð, sem mun hafa áhrif í Bretlandi. Þar í landi hefur lægðin verið kölluð Dennis af bresku veðurstofunni og jafnvel „Dennis the Menace“ eða „Denni dæmalausi“ í umfjöllunum breskra fjölmiðla.