Kennsla í öllum grunnskólum og leikskólum í Reykjavík fellur niður á morgun, föstudag, vegna veðurs. Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið fyrir hádegi á morgun. Þetta er fyrsta rauða viðvörunin sem Veðurstofan gefur út fyrir höfuðborgarsvæðið frá því litaviðvörunarkerfi Veðurstofunnar var tekið í notkun í nóvember 2017.
Von er á tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitafélaga og almannavörnum um skólahald í öðrum sveitarfélögum á morgun. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna veðursins sem skellur á öllu landinu snemma í fyrramálið. Lögreglan bendir á að um tíma verður ekkert ferðaveður á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá skóla- og frístundasviði borgarinnar verða flestar skólabyggingar þó opnar og stjórnendur verða að öllum líkindum á staðnum. Algjör lágmarksþjónusta verður veitt, til dæmis á frístundaheimilum, ef þörf þykir. Almannavarnir beina því til fólks að vera heima ef það hefur tök á.
Þá fellur skólahald niður víða í framhaldsskólum en mbl.is hefur fengið upplýsingar um að skólahald felli niður í eftirfarandi framhalds- og menntaskólum á höfuðborgarsvæðinu: í Kvennskóla Reykjavíkur, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Verzlunarskóla Íslands, Menntaskólanum í Reykjavík og Menntaskólanum í Kópavogi.
Kennslu í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík hefur einnig verið aflýst á morgun vegna veðurs.