Sérlega kröpp lægð gekk inn á landið í nótt og eru appelsínugular viðvaranir í gildi fram eftir degi. Mesti veðurofsinn er nú genginn niður á höfuðborgarsvæðinu, Suð- og Suðausturlandi og við Faxaflóa, þar sem rauðar viðvaranir voru í gildi í morgun.
Veðrið hefur haft töluverð áhrif. Bátur sökk í Eyjum, bílar hafa fokið til í Reykjanesbæ, þak fauk af fjölbýlishúsi á Kjalarnesi og maður var færður á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir þakplötu í Hvalfirði. Einnig hefur sjór gengið á land á Suðurnesjum, bæði í Reykjanesbæ og Garði, og það valdið tjóni.
Hér að neðan má finna allar nýjustu fréttir og uppfærslur frá blaðamönnum mbl.is og fréttariturum víða um land.