Búið er að opna Reykjanesbraut og Grindavíkurveg. Enn er þó bálhvasst og hálka og hálkublettir á vegunum og hvetur lögregla vegfarendur til að sýna aðgát og fara varlega.
Flestar aðrar aðalleiðir á landinu eru enn lokaðar og fólk beðið að vera ekki á ferðinni.