Strætó á höfuðborgarsvæðinu mun hefja akstur á nýjan leik í kringum klukkan 11:30 til 12 í dag.
Brottfarartímar hverrar leiðar verða aðgengilegar undir „gjallarhorninu“ á vefsíðu Strætó þegar nákvæmari upplýsingar liggja fyrir, að því er segir í tilkynningu.
Staðan verður tekin hjá Strætó á landsbyggðinni um kl. 13-14.
Akstursþjónusta fatlaðs fólks mun hefja akstur á nýjan leik um kl. 12.