Vigfús Ólafsson var í dag dæmdur í 14 ára fangelsi í Hæstarétti fyrir að hafa valdið eldsvoða við Kirkjuveg á Selfossi árið 2018 þar sem tvær manneskjur létust.
Áður hafði Héraðsdómur Suðurlands dæmt Vigfús í fjögurra ára fangelsi fyrir brennu og manndráp af gáleysi, en Landsréttur þyngdi dóminn í fjórtán ár fyrir brennu og manndráp. Aðalkrafa héraðssaksóknara var að Vigfús skyldi dæmdur fyrir manndráp og brennu en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brennu.
Í dómi Hæstaréttar segir að Vigfúsi hafi ekki getað dulist hverjar afleiðingar þess að kveikja eld í stofu íbúðarhússins gætu orðið, „þótt mörk stórfellds gáleysis og lægsta stigs ásetnings geti skarast með ýmsum hætti.“
Hæstiréttur taldi Vigfús hafa haft raunverulega vitund um refsinæmar afleiðingar háttsemi sinnar en engu að síður látið það sér í léttu rúmi liggja hvort eldurinn breiddist út með þeim afleiðingum að mönnum yrði lífsháski búinn, stórfellt eignatjón yrði og líklegt væri að þeir sem væru á efri hæð hússins kæmust ekki undan og biðu bana.
„Komst Landsréttur þannig réttilega að þeirri niðurstöðu að ákærði hafi á verknaðarstundu haft lægsta stig ásetnings til beggja brotanna,“ segir í dómi Hæstaréttar.
Í dómi Landsréttar var vísað til þess að Vigfús hefði kveikt eldinn vitandi að á efri hæð hússins væru þau tvö sem létust í eldsvoðanum. Þá hefði hann vitað að mikill eldsmatur væri í húsinu og ekki getað dulist að svo gæti farið að þau, sem uppi voru, kæmust ekki undan ef kviknaði í húsinu og líklegt væri að þau gætu beðið bana, eins og reyndin hefði orðið. Þrátt fyrir að hafa vitað þetta hefði hann kveikt eld sem hefði leitt til þess að tvær manneskjur létust. Þess vegna hafi hann verið sakfelldur fyrir manndráp.
„Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ásetningur hans hefði ekki verið mjög einbeittur. Hins vegar hefði hann enga tilraun gert til að vara við þau sem voru á efri hæð hússins og létust í eldsvoðanum eða koma þeim til bjargar,“ segir í reifun Landsréttar, þar sem einnig kemur fram að Vigfúsi hafi verið gert að greiða börnum og foreldrum hinna látnu bætur.