Vettvangsrannsókn er lokið á brunavettvangi í Hrísey. Ekki er á þessu stigi hægt að segja til um orsök eldsvoðans og málið enn á frumstigi. Frá þessu greinir lögreglan á Norðurlandi eystra í færslu á Facebook-síðu sinni.
Rannsókn hófst í morgun þegar sérfræðingur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fór ásamt þremur lögregluþjónum, tveimur frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og einum rannsóknalögregluþjóni frá Akureyri, með fyrstu ferju til Hríseyjar.
Eldur kom upp í gamla frystihúsinu í eyjunni í gærmorgun þar sem Hrísey Seafood er með fiskvinnslu. Húsið er gjörónýtt.
Til viðbótar við rannsóknarvettvanginn hefur lögreglan leitað til íbúa eyjarinnar með myndefni sem sýna betur þróun brunans þar til slökkvilið kom á vettvang.
Vettvangi hefur verið skilað til tryggingafélagsins og hófst strax vinna við að draga úr skaða frá rústunum þar sem lausar plötur voru farnar að fjúka. Unnið verður áfram að rannsókn málsins.