Eldsvoðinn líklega af mannavöldum

Frá vettvangi brunans í Hrísey í maí.
Frá vettvangi brunans í Hrísey í maí. mbl.is/Ellert

Líklegasta skýringin er að eldur hafi komið upp í kjölfar vinnu sem átti sér stað þarna um kvöldið,“ segir Berg­ur Jóns­son, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Norður­landi eystra, um brunann á frystihúsinu í Hrísey í maí. 

Karl­maður sem gisti í gamla frysti­hús­inu hringdi í Neyðarlín­una þegar hann varð var við eld­inn. Maður­inn var verk­stjóri í hús­inu og gisti þar vegna þess að hann býr ekki á eyj­unni. 

Bergur segir niðurstöður skýrslna frá tæknideld og Hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un bendi til þess að bruninn hafi komið upp af mannavöldum en rannsókn lögreglu er á lokametrunum.

Þó sé ekki hægt að útiloka með fullri vissu að kviknað hafi í út frá rafmagni.

Maður hafi verið að rafsjóða í frystihúsinu kvöldið áður en eldurinn kom upp. Miðað við hvar eldurinn kom upp er talið líklegastað neisti hafi hlaupið úr suðunni í umbúðir sem þar voru nálægt, að sögn Bergs. 

„Í þessu máli benti allt til gáleysisverknaðar strax í upphafi,“ segir Bergur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert