Ólafur Helgi færður til ráðuneytisins

Ólafur Helgi Kjartansson er lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Ólafur Helgi Kjartansson er lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, tekur við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu um næstu mánaðamót. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur ólga verið innan lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarið og kvartanir borist dómsmálaráðuneytinu frá starfsmönnum embættisins. 

„Flutningur Ólafs er á grundvelli ákvæðis 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en ákvæðinu var breytt árið 2016, m.a. í því skyni að gefa skipuðum forstöðumönnum ríkisins færi á að flytja sig í annað starf og auka þannig hreyfanleika forstöðumanna, m.a. í tengslum við starfslok,“ segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. 

Flutningur Ólafs Helga er í tilkynningunni sagður gefa ráðuneytinu og lögreglunni færi á að nýta sérþekkingu hans og reynslu á sviði landamæravörslu næstu árin, „sérstaklega þegar kemur að Schengen samstarfinu og þeirri margvíslegu samvinnu Schengen ríkjanna á sviði landamæragæslu sem hefur verið byggð upp innan Frontex landamærastofnunarinnar.“

Grímur Hergeirsson og Margrét Kristín Pálsdóttir.
Grímur Hergeirsson og Margrét Kristín Pálsdóttir. Samsett mynd/Stjórnarráðið

Grímur Hergeirsson tekur við starfi Ólafs Helga

Grímur Hergeirsson, staðgengill lögreglustjórans á Suðurlandi, verður tímabundið settur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum, frá 1. september til 1. nóvember nk. Margrét Kristín Pálsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, mun gegna stöðu aðstoðarlögreglustjóra hjá embættinu á sama tímabili. Embættið verður auglýst laust til umsóknar við fyrsta tækifæri, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

Grímur lauk prófi frá lögregluskóla ríkisins 1998 og starfaði sem lögreglumaður og rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglustjóranum á Selfossi til ársins 2004. Hann lauk meistaraprófi í lögfræði frá HÍ 2009 og málflutningsréttindum fyrir héraðsdómi sama ár.

„Hann var starfandi lögmaður til ársins 2014 og frá þeim tíma löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum á Selfossi og frá 2015 hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi. Grímur hefur verið yfirlögfræðingur ákærusviðs og staðgengill lögreglustjórans á Suðurlandi frá 1. apríl 2017 og var settur lögreglustjóri á Suðurlandi frá 1. janúar-15 mars 2020,“ segir í tilkynningunni. 

„Margrét Kristín Pálsdóttir lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013. Hún hefur starfað sem lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu (áður innanríkisráðuneyti) frá árinu 2012 þar sem hún hefur að meginstefnu sinnt verkefnum tengdum málefnum lögreglu og landamæra. Árið 2019 starfaði Margrét tímabundið hjá ríkislögreglustjóra við að setja á fót nýja landamæradeild innan embættisins auk þess sem Margrét var settur aðstoðarríkislögreglustjóri frá 1. janúar til 15. mars 2020.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert