Sundabrautarskýrslan frestast enn

Hugmynd að Sundabraut.
Hugmynd að Sundabraut.

Enn hefur orðið töf á útgáfu skýrslu starfshóps sem samgönguráðherra skipaði í fyrrasumar til að endurmeta áætlanir um Sundabraut.

Vegagerðin leiðir starfið og stóð til að skýrsla starfshópsins yrði tilbúin í ágúst sl.

Vinnan fór síðar af stað en ætlað var vegna Covid og því var skilum frestað fram í lok október. Það tókst ekki vegna umfangsmikillar upplýsingaöflunar og var útgáfunni því frestað til loka nóvember.

Sú dagsetning stóðst ekki heldur en nú sér fyrir endann á starfinu, að því er Vegagerðin tjáði blaðinu. Nú er stefnt að því að skýrslan verði afhent ráðherra í lok janúar. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert