„Við viljum ekki samfélag þar sem fólk sem helgar sig samfélagsmálum þurfi að óttast um öryggi sitt,“ segir í bókun forsætisnefndar Reykjavíkur sem lauk fundi sínum fyrir skömmu. Er hlutverk nefndarinnar meðal annars að skipuleggja starf borgarstjórnar. Forsætisnefndin kom saman í kjölfar skotárása á skrifstofuhúsnæði stjórnmálaflokka og á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.
Í bókuninni kemur ennfremur fram að rætt verði við borgarritara og lögregluyfirvöld um að gípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja öryggi kjörinna fulltrúa.
Bókunin er fékk samhljóma samþykki hjá fulltrúum nefndarinnar:
„Forsætisnefnd fordæmi árásir á höfuðstöðvar stjórnmálaflokka og bifreið borgarstjóra og lítur þær mjög alvarlegum augum. Því miður hafa margir kjörnir fulltrúar áður fengið hótanir vegna starfa sinna. Allt slíkt ofbeldi er aðför að okkar frjálsa, lýðræðislega samfélagi og með öllu óásættanlegt. Forseta er falið að ræða við borgarritara og lögregluyfirvöld og grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja öryggi kjörinna fulltrúa. Gæta verður hófs í umræðu um kjörna fulltrúa og friðhelgi einkalífs þeirra virt. Við viljum ekki samfélag þar sem fólk sem helgar sig samfélagsmálum þurfi að óttast um öryggi sitt,“ segir í bókuninni.