Hannes Hólmsteinn Gissurarson sagði í dag á facebooksíðu sinni að honum hefði í gegnum tíðina verið líkt við Anders Breivik hryðjuverkamann, hann hefði fengið nafnlaus hótunarbréf, sum með hvítu dufti, og veist hefði verið að honum á almannafæri. Þá hefðu skotför eitt sinn sést á stofuglugga á húsi hans en honum hefði ekki dottið í hug „að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta“.
Hannes rifjar upp skrif Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem tók upp hanskann fyrir Hannes árið 2011 og benti m.a. á skrif Guðmundar Andra Thorssonar, nú þingmanns Samfylkingarinnar.
Þetta setur Hannes í samhengi við umræðu í kjölfar skota á bíl Dags B. Eggertssonar sem snýst um hatursorðræðu í garð stjórnmála og stjórnmálamanna.
Færslu Hannesar má lesa hér:
Hér andmælti hinn snjalli blaðamaður Kolbrún Bergþórsdóttir fyrir nokkrum árum hatursorðræðunni um mig, en einn náunginn...
Posted by Hannes Hólmsteinn Gissurarson on Saturday, 30 January 2021