„Það er mikilvægt að það sé mikil þátttaka í skimunum og einnig að hún sé nálægt konum því hún þarf að vera aðgengileg,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra um leghálsskimanir og skimanir fyrir brjóstakrabbameini.
Miklar breytingar voru gerðar á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum um síðustu áramót samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra, sem byggja á tillögum frá embætti landlæknis og skimunarráði.
Tók þá Landspítali, í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri, að sér þá framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í brjóstum og sérskoðun á brjóstum og leghálsi en kom það í hlut heilsugæslunnar um allt land að annast framkvæmd skimana fyrir krabbameini í leghálsi.
Heilsugæslan ákvað í kjölfarið að semja við danska rannsóknastofu um sýnagreiningu.
„Við erum núna í þessu millibilsástandi þar sem sýnin eru að skila sér til baka frá þessari rannsóknarstofu í Danmörku. Þar er gert ráð fyrir því að niðurstöðurnar séu komnar örugglega innan þriggja vikna,“ sagði ráðherra.
„Við erum að tala um þjónustu sem verður betri fyrir konur, öruggari fyrir konur, aðgengilegri fyrir þær og ekki síst, það sem mér finnst skipta miklu máli, að það kostar ekki lengur tæpan fimm þúsund kall heldur fimm hundruð kall að fara í skimun fyrir leghálskrabbameini.“