Rigning víða um land

Það mun rigna víða um land í dag.
Það mun rigna víða um land í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Spáð er suðlægri eða breytilegri átt, 3 til 10 metrum á sekúndu og víða rigningu eða skúrum.

Þurrt verður norðaustanlands fram að hádegi. Dregur úr vætu undir kvöld. Hiti verður á bilinu 9 til 15 stig, hlýjast fyrir austan.

Á morgun verður hæg norðlæg eða breytileg átt og víða smá skúrir og kólnar talsvert fyrir norðan og austan.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert