Eldgosið á eyjunni La Palma hefur ekki áhrif á flugáætlun Icelandair eins og stendur.
„Við erum ekki með beint flug til Kanarí (Gran Canaria), fyrr en leiguflug, seinni partinn í október,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Icelandair er með regluleg flug til Tenerife, en næsta flug þangað er á miðvikudaginn.
Eldgosið er nýskeð og því liggur ekki fyrir hvaða áhrif það mun koma til með að hafa á flugumferð en það ræðst af því hve mikil öskudreifing verður, ef einhver.
Flugfélagið fylgist grannt með þróun mála.