Byggðu 500 íbúðir á tveimur árum

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, afhenti Hjördísi Björk Þrastardóttur, lyklana …
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, afhenti Hjördísi Björk Þrastardóttur, lyklana að fimmhundruðustu íbúð Bjargs að Gæfutjörn í Úlfarsárdal í dag. Með þeim á myndinni eru Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Dagur Eggertsson borgarstjóri. Ljósmynd/Aðsend

Bjarg íbúðafélag afhenti í dag fimmhundruðustu íbúð félagsins við hátíðlega athöfn að viðstöddum borgarstjóra Degi B. Eggertssyni og forsvarsmönnum ASÍ og BSRB.

Bjarg er leigufélag að danskri fyrirmynd sem stofnað var árið 2016 af ASÍ og BSRB og hefur það markmið að tryggja öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði. Félagið var byggt upp frá grunni og sumarið 2019 var fyrsta íbúð Bjargs afhent. Nú tveimur árum síðar er félagið að afhenda til leigu fimmhundruðustu íbúð félagsins sem er í að Gæfutjörn í Úlfarsárdal. 

Öll verkefni á kostnaðaráætlun og réttum tíma

Í tilkynningu frá Bjargi, er haft eftir Degi B. Eggertssyni að hann sé ánægður með starf Bjargar.

„Öruggt leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði er ekki aðeins frábært fyrir íbúa Bjargs heldur hefur góð áhrif á allan húsnæðismarkaðinn. Fimmhundruð íbúðir eru frábær áfangi og engin tilviljun að langstærstur hluti þeirra er í Reykjavík. Ég vonast til að þetta sé aðeins upphafið af áframhaldandi og stórhuga uppbyggingu í góðu samstarfi Bjargs, verkalýðshreyfingarinnar og borgarinnar," er haft eftir Degi í tilkynningunni.

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, segir markmið félagsins að smíða vandaðar og eftirsóknarverðar íbúðir sem eru leigðar á hagstæðu verði.

„Sett eru skýr markmið um kostnað og gæði íbúða og framleiðsla þeirra unnið samkvæmt aðferðafræði sem felur í sér nána samvinnu Bjargs, hönnuða og verktaka sem saman leita leiða til að lækka kostnað og stytta verktíma. Ekki er lagt af stað með framkvæmdir nema búið sé að gera fastverðssamningi við verktaka og með samvinnu aðila hefur tekist að halda öllum verkefnum á kostnaðaráætlun og íbúðir verið afhentar leigutökum á réttum tíma,“ er haft eftir Birni í tilkynningunni.

Óhagnaðardrifið leigufélag

Leigufélagið er óhagnaðardrifið og segir Björn leiguverð þeirra því endurspegla raunkostnað við rekstur fasteigna. 

„Breytingar á rekstrarkostnaði, opinberum gjöldum og fjármagnskostnaði hafa bein áhrif á leiguverð sem tekur breytingum í samræmi við þróun kostnaðar. Bjarg hefur nú þegar lækkað leigu í kjölfar endurfjármögnunar sl. sumar og er dæmigert leiguverð fyrir 3ja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu um 155þúsund og í Þorlákshöfn er sambærileg íbúð á um 125 þúsund," er haft eftir Birni í tilkynningunni.

Mikil eftirspurn er eftir íbúðum félagsins og stefnir félagið að áframhaldandi uppbyggingu þar til jafnvægi næst að sögn Björns. „Til þess að af því verði þarf áframhaldandi stuðning við almenna íbúðakerfið ásamt stöðugu lóðaframboði.

Íbúðir Bjargs í leigu, í byggingu eða á hönnunarstigi eru staðsettar í Grafarvogi, Kirkjusandi, Árbæ, Vogahverfi, Úlfarsárdal, Bryggjuhverfi, Selási, Skerjafirði, Breiðholti og Háaleitisbraut í Reykjavík. Þá er félagið einnig með íbúðir í Hamranesi í Hafnarfirði, Urriðaholti í Garðabæ, á Akureyri, Selfossi, Akranesi, Þorlákshöfn, Hveragerði, Grindavík og Suðurnesjabæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert