Gott bragð í ritsmiðju

Auður Jónsdóttir og Jaouads Hbibs.
Auður Jónsdóttir og Jaouads Hbibs. Ljósmyndir/Saga Sig og Björn Valdimarsson

„Mér finnst rosa gaman að kenna á Siglufirði, þetta er geggjaður staður umvafinn háum fjöllum. Bæjarstæðið er svo fallegt við höfnina og þar er gott að sitja og njóta útsýnis, en ég var með sams konar námskeið á Sigló í vor og það var mikið ævintýri. Við gistum á Hótel Siglunesi þar sem er marokkóskur veitingastaður og ilmurinn af matargerðinni hans Jaouads Hbibs er alltumlykjandi. Heillandi verk eftir listakonuna Huldu Vilhjálms eru um alla veggi, sem skapar líka ákveðna stemningu,“ segir Auður Jónsdóttir rithöfundur sem ætlar að leiða sams konar ritsmiðjunámskeið nú í október á Sigló. Þar verður ekki aðeins boðið upp á leiðsögn Auðar í skapandi skrifum heldur er líka boðið upp á útijóga, gómsætan marokkóskan mat, heita potta og samveru.

„Mér finnst sniðugt að blanda þessu öllu saman hjá fólki á ritlistarnámskeiði, því það getur gengið svo á orkuna hjá fólki sem er að opna fyrir að fara í flæði. Stundum þarf að fá fólk til að slaka vel á áður en það þorir að sleppa hömlunum. Námskeiðin hjá mér ganga svolítið út á að fá fólk til að sleppa tökum á sjálfsritskoðaranum og öðru sem hamlar í skrifum. Við skrifum í ákveðinn tíma en gerum líka eitthvað allt annað til að fá andlega næringu.“

Auður segir að það sé gott fyrir fólk sem er á ritsmiðjunámskeiði að fara burt frá eigin hversdagslífi, færa sig á nýjan stað.

„Við göngum inn í ákveðinn heim og það myndast sérstök stemning hjá hópnum. Ég fann það sjálf þegar ég skrapp til Köben í sumar að það opnast fyrir nýjar hugmyndir við það eitt að fara í annað umhverfi. Þá opnast fyrir nýja hugsun og við sjáum ýmislegt í nýju samhengi. Við þorum þegar við stígum út úr hversdeginum og inn í annað rými, þá opnast fyrir skapandi hugsun sem við leyfum okkur kannski ekki annars. Svona námskeið gengur út á að hjálpa fólki að leyfa sér skapandi hugsun, að skrifa til að skilja og sjá sögurnar í lífinu. Að skrifa er valdeflandi tæki, af því lífið er svo mikið kaos og óreiða. Með skrifunum getur fólk skoðað hvar það leggur merkingu í lífið, þetta er ákveðið valdaleiktæki með veruleikann og það er styrkjandi og heilandi að segja sögu, hvort sem fólk skrifar fyrir sjálft sig eða aðra. Að venja sig á að setja atburði og hluti í sögu. Við gjörninginn að skrifa opnast fyrir skilninginn, hann víkkar út.“

Auður getur vart beðið eftir að fara aftur til Siglufjarðar. „Þar er líka æðislegt súkkulaðikaffihús, ég hlakka til að komast aftur þangað,“ segir Auður og bætir við að ferðaskrifstofan Mundo standi fyrir ritsmiðjunni.

„Hún Margrét Jónsdóttir hjá Mundo fær margar góðar hugmyndir og er flink að búa til ævintýri,“ segir Auður og bætir við að smiðjan sé fyrir fólk á öllum aldri.

„Innan hópsins hverju sinni verður til áhugvert samtal, en ég hef líka verið með ritlistarnámskeið sem við köllum Flot og flæði, þá fljótum við fyrst saman í vatni og skrifum svo að því loknu.“ Ritsmiðjunámskeið Auðar á Siglufirði verður dagana 15.-17. okt. Nánar á mundo.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert