Ný kortavefsjá sem sýnir legu skurða

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði vefinn í gær.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði vefinn í gær. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Nýr upplýsingavefur Landgræðslunnar um votlendi og áhrif framfærslu þess á lífríki og losun gróðurhúsalofttegunda var opnaður í gær. Á honum er einnig að finna nýja kortavefsjá þar sem hægt er að sjá legu skurða á landinu og er hún byggð hún á gögnum frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.

Talið er að tæplega helmingi alls votlendis á Íslandi hafi verið raskað með framfærslu, eða um 47%. Af því votlendi er allt að 70% á láglendi. Upplýsingarnar um skurðakerfi landsins í kortasjánni eru grunnurinn að því að hægt verði að velja og forgangsraða endurheimt votlendis. Fer það þá m.a. eftir legu svæða í landi, staðsetningu innan vatnasviða, loftslagsábata endurheimtar og mögulegum ávinningi þeirra fyrir lífríki.

„Votlendi eru mikilvæg vistkerfi og er endurheimt votlendis öflug loftslagsaðgerð sem skilar vistfræðilegum og hagrænum ábata og dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda. Votlendi býr einnig yfir afar fjölbreyttu lífríki, getur dempað flóðasveiflur á vatnasviðum og er mikilvægt búsvæði ýmissa fuglategunda. Endurheimt votlendis er því öflug aðgerð til að vernda líffræðilega fjölbreytni og efla vatnsmiðlun,“ segir í tilkynningunni.

Mikilvægt tól í þágu loftslags

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði vefinn í gær. Segir hann kortavefsjána mikilvægt tól í aðgerðum í þágu bæði loftslags og líffræðilegrar fjölbreytni.

„Við höfum á undanförnum árum aukið fjármagn í rannsóknir á losun gróðurhúsalofttegunda frá votlendi og lagt áherslu á aðgerðir í þágu verndar og endurheimtar þess m.a. með sérstakri aðgerðaáætlun um verndun votlendis sem er byggð á aðgerðaáætlun í loftslagsmálum til ársins 2030. Ég bind miklar vonir við að öll þessi tól séu gagnleg við að koma okkur hraðar að markmiðunum um að auka vernd og endurheimt votlendis á Íslandi,“ er haft eftir honum í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert