140 skjálftar og enn bætist í

Staðan eins og hún leit út rétt fyrir klukkan níu …
Staðan eins og hún leit út rétt fyrir klukkan níu í morgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Hægst hefur á skjálftahrinunni sem hófst við Grindavík í gærkvöldi en önnur skjálftahrina er enn í gangi. Sú er staðsett í grennd við Þrengslin, suður af Syðri-Eldborg. „Þetta er í raun bara eðlilegt. Það koma hrinur þarna reglulega,“ segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands um stöðuna. 

Skjálfti að stærð 3 varð 3,5 kílómetra frá Grindavík rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi og mældust um 20 skjálftar á svæðinu í kjölfarið. 

Mælast enn skjálftar við Þrengslin

Um 140 skjálftar hafa mælst í grennd við Þrengslin síðan í gær og er hrinan enn í gangi. 

„Þar koma reglulega inn skjálftar,“ segir Lovísa í samtali við mbl.is.

Stærsti skjálfti sem mælst hefur við Þrengslin á sl. sólarhring var 2,9 að stærð en hann varð rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.

Veðurstofunni hafa borist tilkynningar frá fólki sem hefur orðið vart við skjálftana við Þrengslin og sömuleiðis þá sem urðu við Grindavík í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert