17 liggja á Landspítala vegna Covid-19

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn

17 sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Meðalaldur þeirra er 66 ár. Fimm eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Tveir eru óbólusettir. 

1.380 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 438 börn, að því er segir í tilkynningu.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní síðastliðnum, hafa 219 verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert