Steinunn Valdís stýrir aðgerðahópi

Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu, sem formann aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði.

Hópurinn var skipaður í september í kjölfar skýrslu sem starfshópur um endurmat kvennastarfa skilaði af sér.

Verkefni hópsins verður að leggja fram tillögur að aðgerðum til að útrýma launamun sem skýrist af kynskiptum vinnumarkaði og kerfisbundnu vanmati á hefðbundnum kvennastörfum, að því er kemur fram í tilkynningu.

Í hópnum eiga einnig sæti fulltrúar frá félagsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, ASÍ, BSRB, BHM, Kennarasambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Sambandi ís­lenskra sveitarfélaga. Bára Hildur Jóhannsdóttir sérfræðingur hefur verið ráðin sem starfsmaður hópsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert