Afnema skilyrði um tveggja ára starfsreynslu

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkratryggingum Íslands að fella brott ákvæði úr rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um tveggja ára starfsreynslu sem skilyrði fyrir greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Starfshópur vinnur nú að greiningu á þjónustu talmeinafræðinga og hvernig henni verði best hagað til framtíðar með hliðsjón af lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ný heildstæð samningsmarkmið um þessa þjónustu verða byggð á vinnu starfshópsins og er stefnt að því að SÍ og talmeinafræðingar geti hafið viðræður um nýjan samning á grundvelli þeirra eftir áramót.

„Við sem samfélag berum skyldur gagnvart þeim sem þurfa á þjónustunni að halda sem að langstærstum hluta eru börn. Það skiptir miklu að hægt sé að veita þessum börnum þjónustu eins fljótt og kostur er. Annars er viðbúið að vandi þeirra aukist og verði alvarlegri eftir því sem tíminn líður sem eykur enn frekar á þjónustuþörfina.“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Gert er ráð fyrir að unnt verði að fella brott umrætt ákvæði í byrjun næsta árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert