Beint: Óveðrið séð af strandlengjunni meðfram Sæbraut

Skjáskot/Advania

Þar sem Veðurstofa Íslands spáir afar djúpri lægð og óvenju miklum öldugangi í kvöld og í nótt hefur fyrirtækið Advania ákveðið að halda úti beinu streymi þar sem hægt verður að fylgjast með óveðrinu ganga yfir.

Var vefmyndavél stillt upp í gluggakistu fyrirtækisins þar sem horft er út á strandlengjuna meðfram Sæbraut, og geta áhugasamir fylgst þar með því hvernig óveðrið verður.

Streymið má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert