Laust skilti á Kársnesi

Slökkviliðið að störfum í morgun.
Slökkviliðið að störfum í morgun. mbl.is/Gunnlaugur

Lögreglan óskaði um níuleytið í morgun eftir aðstoð slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu við að festa upp skilti á húsnæði fyrirtækis við Bakkabraut á Kársnesi í Kópavogi.

Skiltið var tekið að losna vegna óveðursins í gærkvöldi og í nótt og stafaði því af því hætta, að sögn varðstjóra slökkviliðsins.  

Körfubíll slökkviliðsins var notaður til verksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert