Lést af völdum Covid-19

Karlmaður á áttræðisaldri lést vegna Covid-19.
Karlmaður á áttræðisaldri lést vegna Covid-19. mbl.is

Heimilismaður á áttræðisaldri lést af völdum Covid-19 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Þetta staðfestir Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts, rekstrarfélags Sunnuhlíðar.

Viljinn greindi fyrst frá.

Smit kom upp á hjúkrunarheimilinu snemma í síðustu viku en síðan þá hafa ríflega 40 heimilismenn af 66 greinst með kórónuveiruna og fjöldi starfsmanna. Fáir hafa þó veikst mikið.

Að sögn Kristjáns hefur gengið ágætlega að manna vaktir, en það hafi þó verið þungt. Til að koma til móts við þann fjölda sem var frá hafi þurft að loka endurhæfingunni og iðjuþjálfuninni, og færa starfsfólk á milli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert