Runólfur skipaður forstjóri Landspítala

Runólfur Pálsson.
Runólfur Pálsson.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Runólf Pálsson í embætti forstjóra Landspítala til næstu fimm ára og tekur hann við embætti forstjóra 1. mars næstkomandi. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem mat Runólf meðal þeirra umsækjenda sem hæfastir þóttu til að gegna embættinu.

Runólfur er læknir að mennt með sérfræðiréttindi í lyflækningum og nýrnalækningum. Fram kemur á vef heilbrigðisráðuneytisins, að Runólfur hafi afburðarþekkingu á öllum þáttum faglegrar starfsemi spítalans en hafi einnig yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigðiskerfinu hér á landi í víðu samhengi, samspili stofnana og mismunandi þjónustustiga. Hann hafi verið leiðandi og  farsæll í klínískum störfum og sem stjórnandi. Runólfur hafi unnið að innleiðingu margvíslegra umbóta og nýjunga og framtíðarsýn hans fyrir Landspítala sé skýr.

Runólfur var kennslustjóri lyflækningasviðs og staðgengill framhaldsmenntunarstjóra lyflækningasviðs Landspítala auk þess að hafa komið að fjölda nefnda og annarra stefnumótandi starfa í tengslum við kennslu- og þjálfunarhlutverk spítalans.

„Runólfur er prófessor við Háskóla Íslands og varaforseti læknadeildar Háskóla Íslands. Þá hefur hann gegnt leiðandi hlutverki á alþjóðavettvangi á sviði lyflæknisfræði. Hann hefur verið afkastamikill í vísindastarfi og hefur mikinn metnað og skýra sýn á akademískt hlutverk spítalans og umbætur á því sviði sem og mikilvægi tengsla spítalans við háskólastofnanir," segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert