Telja sig hafa fundið gamlan bát á botninum

Kafarar landhelgisgæslunnar eru komnir á flot en ekki enn farnir …
Kafarar landhelgisgæslunnar eru komnir á flot en ekki enn farnir í vatnið. mbl.is/Ari

Kafarar séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar eru í biðstöðu á Þingvallavatni þar sem leitað hefur verið að flugvélinni týndu og þeim fjórum sem voru þar um borð. 

Kafararnir eru ekki enn farnir ofan í vatnið en notast hefur verið við svokallað sidesonar-tæki við leitina ásamt fjarstýrðum kafbát.  

GAVIA sidesonar-tæki hefur verið tekið í notkun.
GAVIA sidesonar-tæki hefur verið tekið í notkun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Kalt og djúpt“

„Eins og staðan er núna eru þessi tæki nýtt til leitar. Vatnið er auðvitað kalt og djúpt,“ segir Ásgeirs Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við blaðamann mbl.is á vettvangi.

Þegar kafararnir fóru á flot.
Þegar kafararnir fóru á flot. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugvélin hefur ekki enn fundist, að sögn Ásgeirs. Samkvæmt lögreglunni á Suðurlandi fannst þó hlutur á botni vatnsins sem við nánari athugun var ekki vélin. Líklegast er að um sé að ræða gamlan bát.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert