Landið allt appelsínugult

Spár vegna óveðursins aðfaranótt mánudags eru nokkuð stöðugar og hefur …
Spár vegna óveðursins aðfaranótt mánudags eru nokkuð stöðugar og hefur viðvörunarstig verið hækkað á appelsínugult á öllu landinu. Ljósmynd/Veðurstofan

Appelsínugul veðurviðvörun er fyrir allt landið aðfaranótt mánudags. Frá þessu greinir Veðurstofa Íslands í tilkynningu á facebooksíðu sinni.

Samkvæmt Veðurstofunni eru miklar líkur á foktjóni og ófærð og því er fólki ráðlagt að ganga vel frá lausamunum og verktökum bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert