Miklar truflanir á starfsemi Landspítala

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Árni Sæberg

Búist er við miklum truflunum á reglulegri starfsemi Landspítala í ljósi aftakaveðurs með rauðri viðvörun sem tekur gildi klukkan 4 í nótt á höfuðborg­ar­svæðið, Suður­land og Faxa­flóa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum.

Á deildum með sólarhringsstarfsemi er mælst til að starfsfólk á morgunvakt verði í samskiptum við sínar deildir vegna mætingar.

Líklegt er að sumt starfsfólk þurfi að koma inn á miðnætti í kvöld og gista eða koma inn síðar þegar veðri slotar, sem verður væntanlega um klukkan níu eða tíu í fyrramálið.

Jafnframt mun næturvaktin ekki komast heim af vaktinni fyrr en eftir klukkan níu. Þetta verður framkvæmt í samráði við stjórnendur.

Gert er ráð fyrir að það starfsfólk sem ekki þarf nauðsynlega að koma til starfa í fyrramálið sinni störfum sínum heima og/eða bíði eftir að veður lægi.

 Þá verður engin dag- og göngudeildarþjónusta á Landspítala á morgun og fá sjúklingar úthlutað nýjum tímum.

Allir bókaðir tímar verða því felldir niður á morgun, mánudag. Hægt er að hafa samband við Landspítala í síma 543 1000 eða netspjalli á vef spítalans, og fá þar nánari upplýsingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert