Skólahald fellur niður

Leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun.
Leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reglulegt skóla- og frístundastarf fellur niður á morgun en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum höfuðborgarsvæðisins.

„Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun mánudag sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til.

Þó svo veður verði skaplegt á morgun og veðurviðvaranir ekki til staðar, þá mun færð spillast og er mikilvægt að fólk haldi sig heima meðan verið er að ryðja vegi og fólk fylgist vel með upplýsingum, en það er tímafrekt að ryðja húsgötur,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert