Færðin er verst í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins og almennt erfitt að komast leiðar sinnar á svæðinu.
Þetta segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, í samtali við mbl.is.
Bílar eru fastir á vegum í efri byggðum „og fólk á helst ekki að vera á ferðinni,“ segir Hjördís.
Fylgjast má með færð vega hér.