Rýma bæi vegna snjóflóðahættu

Snjóflóðavarnir á Ísafirði.
Snjóflóðavarnir á Ísafirði. mbl.is/Hallur Már

Hættustigi hefur verið lýst yfir á Ísafirði og Patreksfirði vegna snjóflóðahættu og hafa svæði þar verið rýmd.

Á Ísafirði hefur svæði undir Steiniðjugili verið rýmt ásamt nokkrum sveitabæjum og sorpvinnslusvæðinu við Funa, að sögn Veðurstofunnar.

Allmörg snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum síðustu daga og þar af nokkur í Skutulsfirði. Síðast í gær féllu tvö snjóflóð utan við Kirkjubæ og þrjú flóð í Fossahlíð.

Snjóflóð féllu aðfaranótt mánudags á varnargarða á Patreksfirði. Varnargarður ver hluta rýmingarreits 4 en framkvæmdir eru hafnar við garð sem á að verja hlutann sem nú hefur verið rýmdur.

Spáð snjókomu og éljagangi

Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi fyrir Vestfirði. Snjóað hefur á svæðinu í norðlægum og austlægum áttum síðan um miðja síðustu viku og vitað er um veikleika í snjóþekjunni.

Spár gera ráð fyrir áframhaldandi hvassri norðaustanátt með snjókomu og síðan éljagangi í dag og fram á morgundag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert