Björgunarsveitir kallaðar út vegna fastra bíla

Björgunarsveitir aðstoðuðu meðal annars við vaktaskipti í fangelsinu á Hólmsheiði …
Björgunarsveitir aðstoðuðu meðal annars við vaktaskipti í fangelsinu á Hólmsheiði í morgun. Ljósmynd/Guðbrandur Örn

Björgunarsveitir voru kallaðar út í morgun vegna fastra bíla í efri byggðum borgarinnar en vel hefur gengið að leysa verkefnin.

Þetta kemur fram í tilkynningu en snjó hefur kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu frá því í gær og er þungfært víða í efri byggðum.

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hvet­ur fólk sem ekki er á vel­bún­um bíl­um að vera ekki á ferðinni í dag þar sem slæm færð er á veg­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert