Karl á sextugsaldri lést með Covid-19

Karlmaður á sextugsaldri, með Covid-19 sýkingu, lést á gjörgæslu Landspítalans í gær.

Frá þessu greinir spítalinn í tilkynningu.

Þar með hafa 57 látist á Íslandi með Covid-19 sýkingu, ef marka má upplýsingar á vefnum covid.is.

Á þeim vef eru öll andlát sögð vegna Covid-19, en í tilkynningum spítalans að undanförnu er einvörðungu tekið fram að fólk hafi látist með sjúkdóminn.

Ekki er því ljóst samkvæmt uppgefinni tölfræði yfirvalda hversu mörg andlát eru beinlínis af völdum sjúkdómsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert