Pósturinn skellir í lás í Mosó og Garðabæ

Pósthúsinu við Háholt í Mosfelssbæ verður lokað í maí. Fjölga …
Pósthúsinu við Háholt í Mosfelssbæ verður lokað í maí. Fjölga á póstboxum í bænum á móti. Sama gildir um pósthúsið við Litlatún í Garðabæ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það eru miklar breytingar í þessum rekstri. Við erum ekki að fækka afgreiðslustöðum heldur fjölga þeim – en vissulega að breyta þeim,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandspósts.

Fyrirtækið hefur ákveðið að loka tveimur pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu hinn 1. maí næstkomandi. Um er að ræða pósthúsin við Háholt 14 í Mosfellsbæ og við Litlatún 3 í Garðabæ. „Þetta er búið að vera í undirbúningi og við höfum upplýst viðkomandi bæjaryfirvöld og fundað með bæjarstjórunum,“ segir Hörður.

Vinna með bæjarstjórninni

Eftir að pósthúsunum tveimur verður lokað verða sex pósthús eftir á höfuðborgarsvæðinu. Í vikunni var greint frá lokun tveggja pósthúsa á Suðurlandi.

„Þessi eru tvö af þeim minni sem við höfum á höfuðborgarsvæðinu. Við verðum með sex öflug pósthús eftir. Það er stutt frá Garðabæ á pósthúsið í Kópavogi sem er mjög öflugt og líka tiltölulega stutt í Hafnarfjörð. Pósthúsið í Mosfellsbæ er okkar minnsta pósthús en við erum þegar komin með tvö póstbox í Mosfellsbæ og erum að vinna með bæjarstjórninni í að finna pláss fyrir fleiri þar,“ segir Hörður.

Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert