Óbreytt staða á Landspítalanum

Covid-sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 241.
Covid-sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 241. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

55 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír þeirra eru á gjörgæslu og tveir þeirra eru í öndunarvél.

Er það óbreytt staða á Landspítalanum frá því í gær utan þess að einum færri er í öndunarvél, en í gær voru allir sem lágu á gjörgæslu með Covid-19 í öndunarvél. 

241 Covid-sýktur starfsmaður Landspítala er í einangrun og er Landspítalinn enn á neyðarstigi vegna mönnunarvandræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert