Sakar Halldóru um atvinnuróg

Efling.
Efling. Samsett mynd/mbl.is

Andri Sigurðsson, hönnuður og félagi í Sósíalistaflokknum sem sér einnig um bloggið Jæja, segir að þriðji varaforseti ASÍ hafi stundað atvinnuróg um sig og misnotað stöðu sína sem málsvari sambandsins.

Þetta kemur fram í erindi sem hann sendi ASÍ vegna viðtals sem birtist við Halldóru Sveinsdóttur á mbl.is í gær þar hún tjáði sig um nýlegar fregnir af fjármálum Eflingar.

„Í viðtalinu kemur Halldóra fram í nafni Alþýðusambandsins og tjáir sig um mín störf í útseldri vinnu til eins af aðildarfélögum ASÍ. Hún talar um mín störf á þeim nótum að þar hafi lög hugsanlega verið brotin og að fjárdráttur hafi átt sér stað. Er ég nefndur á nafn í fréttinni og er ljóst að átt er við vinnu mína fyrir Eflingu - stéttarfélag frá árinu 2019 og fram til janúar á þessu ári við vefhönnun, grafík og fleira,“ skrifar Andri.

„Enginn aðili hefur stigið fram undir nafni til að setja fram grunsemdir um fjárdrátt í störfum mínum fyrir Eflingu eða að í þeim störfum hafi ekki verið farið að lögum. Til mín hafa engar fyrirspurnir eða upplýsingar borist um slíkt, hvorki frá Eflingu né öðrum, fyrir utan orðróm um að sitjandi formaður Eflingar hafi sett fram einhverjar óljósar dylgjur á trúnaðarráðsfundi í síðasta mánuði.“

Andri kveðst ekki skilja hvers vegna Halldóra ræðir um hann og hans störf við fjölmiðla og setji þau í samhengi við lögbrot og fjárdrátt.

„Ég tel að með þessu stundi varaforseti atvinnuróg um mig, og misnoti stöðu sína sem málsvari Alþýðusambandsins til þess. Ég er sjálfstætt starfandi og byggi afkomu mína m.a. á orðspori mínu og þeirrar vinnu sem ég vinn fyrir mína viðskiptavini. Með því að fulltrúi Alþýðusambands Íslands bendli störf mín algjörlega að tilhæfulausu við fjárdrátt og lögbrot er vegið að starfsheiðri mínum og mér gert erfiðara að afla mér lífsviðurværis. Það er fremur nöturlegt að einn af æðstu leiðtogum Alþýðusambands Íslands sýni af sér slíka hegðun og finnst mér spurning hvort það sé sæmandi embætti varaforseta ASÍ,“ skrifar hann og óskar eftir skýringum ASÍ á þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert