Reykjavíkurdætur og Með hækkandi sól í einvígið

Rífandi stemning á Söngvakeppninni í kvöld.
Rífandi stemning á Söngvakeppninni í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykjavíkurdætur og systratríóið Sigga, Beta og Elín komust áfram í úrslitaeinvígið í Söngvakeppni sjónvarpsins sem fram fer í Söngvakeppnishöllinni í Gufunesi í kvöld. 

Alls kepptu fimm lög til úrslita, en símakosning og val alþjóðlegar dómnefndar réðu því hvaða atriði komust áfram í úrslitaeinvígið.

Símakosning ræður því síðan hvort atriðanna tveggja fer alla leið til Torínó á Ítalíu þar sem Eurovision fer fram í maí.

Þau fimm atriði sem kepptu til úrslita í kvöld voru auk Reykjavíkurdætra, Siggu, Betu og Elínar voru söngkonan Katla, söngvarinn Stefán Óli og dúóið Amarosis. 

Fulltrúar Íslands í alþjóðlegri dómnefnd.
Fulltrúar Íslands í alþjóðlegri dómnefnd. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert