Eldur í bíl við Grensásveg

Talið er að bíllinn hafi verið mannlaus.
Talið er að bíllinn hafi verið mannlaus. Ljósmynd/Aðsend

Eldur kviknaði í bifreið í morgun sem var stödd milli Grensásvegar og Háaleitisbrautar. Þetta staðfestir umferðardeild lögreglu.

Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu og lögregla hafa verið kölluð á vettvang en enginn hefur slasast.

Ekki er vitað hvers vegna kviknaði í bílnum en ekki var um árekstur að ræða. Þá er talið líklegt að bifreiðin hafi verið mannlaus þegar eldurinn kom upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert