Kona sem smituð var af Covid-19 lést

Konan lést á Landspítala.
Konan lést á Landspítala. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Kona á sjötugsaldri sem var með Covid-19 lést á spítala í gær, að því er fram kemur á heimasíðu Landspítala. 

Alls hafa orðið 91 dauðsfall í faraldrinum hér á landi.

70 sjúklingar liggja á spítalanum með Covid-19. Fjórir þeirra eru á gjörgæslu og þrír þeirra í öndunarvél.

Meðalaldur innlagðra er 74 ár.

Alls er 81 einstaklingur á spítala á landsvísu með Covid-19, þar af sex á gjörgæslu.

46% Íslendinga hafa greinst

1.879 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær en ríflega 4.000 sýni voru tekin. 

46% Íslendinga hafa greinst með Covid-19 frá upphafi faraldurs og hafa 2,2% greinst oftar en einu sinni.

Þórólf­ur Guðnason sóttvarnalæknir sagði fyrir um viku síðan að hlut­fall já­kvæðra hraðprófa sem notuð eru til staðfest­ing­ar á smiti væri svipað og hlut­fall já­kvæðra PCR sýna áður, en vegna nokkuð lak­ara næm­is hraðpróf­anna væri það vís­bend­ing um að út­breiðslan væri lík­lega meiri en áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert