Mál Arons og Eggerts á borði héraðssaksóknara

Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mál knattspyrnumannanna Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar, er komið á borð embættis héraðssaksóknara. Mönnunum er gefið að sök að hafa brotið kynferðislega á íslenskri konu í Kaupmannahöfn árið 2010.

Rúv greindi fyrst frá.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók málið upp að nýju í lok september á síðasta ári að beiðni konunnar og voru mennirnir kallaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni í byrjun desember. Rannsókn lögreglu er nú lokið.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfestir við mbl.is að mál sem kom upp fyrir þó nokkrum árum er varðar kynferðisbrot erlendis, hafi nýlega komið á borð embættisins. Hún gat þó ekki gefið upp frekari upplýsingar varðandi málið eða framgang þess.

Bæði Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa lýst yfir sakleysi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert