Skýjað með köflum í dag

Skýjað í Reykjavík.
Skýjað í Reykjavík. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Í dag spáir suðvestlægri átt 3 til 10 metrum á sekúndu en heldur hvassara norðvestantil.

Yfirleitt skýjað með köflum og lítilsháttar skúrir á víð og dreif en þurrt að kalla síðdegis.

Hiti 4 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum.

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands að svipað veður verði á morgun en eftir hádegi verður vaxandi norðanátt fyrir austan með rigningu eða slyddu.

Hiti 7 til 12 stig en mun svalara á norðaustanverðu landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert