Fangi í gæsluvarðhaldi slapp frá lögreglu í dag er átti að flytja hann úr héraðsdómi Reykjavíkur.
Rúv greindi fyrst frá málinu og segir þar að maðurinn sé enn á flótta. Búið sé að lýsa eftir manninum innan lögreglunnar.
Uppfært 10:57:
Í tilkynningu á Facebook greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá því að fanginn heiti Gabríel Douane Boama og er tvítugur.
Hann strauk úr héraðsdómi um sjöleytið er mál hans var til meðferðar.
„Gabríel er 192 cm á hæð, með brún augu og um 85 kg að þyngd. Hann er klæddur í hvíta hettupeysu, gallabuxur og hvíta skó.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Gabríels eða vita hvar hann er niðurkominn er vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.“
Þá er Gabríel hvattur til að gefa sig strax fram.