Umfangsmiklar aðgerðir lögreglunnar í gærkvöldi og nótt þar sem húsleitir voru gerðar og ökutæki stöðvuð leiddu til þess að strokufanginn sem lýst hefur verið eftir var handtekinn undir morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Þar segir enn fremur að fimm önnur hafi verið handtekin í aðgerðum lögreglu sem rannsakar hvort fanganum, Gabríel Douane Boama, hafi verið veitt aðstoð við að losna undan handtöku. Þau eru einnig í fangageymslu lögreglu.